21.4.2008 | 12:49
Uppskerutíminn
Jæja þá eru einkunnir komnar í hús. Ég náði öllum fögunum, ekkert smá ánægð
Ég var með fínar einkunnir í bæði almennri lögfæði og svo í kröfurétti- fékk meira að segja sérstakt hrós frá kennaranum- ferlega gaman. Mér gekk hins vegar ekki eins vel í skattaréttinum, svona eins og ég bjóst við, en náði þó með aðra einkunn. Ég má víst prísa mig sæla þar sem að ég hef heyrt að það hafi verið 40% fall í faginu. Það er alltaf ánægjulegt þegar vel gengur.
Nú er það bara misserisvarnir og viðvera- síðan hefst stríðið á nýjan leik og klárast ekki fyrr en 28. júní. Bara gaman að þessu. Ætla að fara og njóta dagsins , njóta þess að vera til og hafa það gaman.
Kærleikskveðjur á ykkur öll
Dísa
Athugasemdir
Þetta er bara geggjað, þú ert algjör námshestur og ert svo sannarlega búin að vinna fyrir þessu.
Enn og aftur til hamingju með prófin, núna er hægt að fara að slaka aðeins á, er það ekki ??
lov ya Linda
Linda litla, 21.4.2008 kl. 13:43
Til hamingju með fínan árangur.
Ragnheiður , 21.4.2008 kl. 16:24
Til hamingu góðan árangur Dísa mín,ég efaðist aldrei um þig,vissi það í hjarta mínu að þú myndir ná þessu
Farðu nú og njóttu þess að vera til..
Risa knús
Guðný Einarsdóttir, 22.4.2008 kl. 12:37
Til hamingju með flottan árangur
Dísa Dóra, 22.4.2008 kl. 17:28
Gunnar Helgi Eysteinsson, 22.4.2008 kl. 17:45
Til hamingju elskan...
Enda ekki við öðru að búast
kv: pabbi og ''stóri'' litli bróðir
Sigfús Sveinsson (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 00:47
til hamingju með fínan árangur kv kormákur
Korri cool (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 20:15
Þúsund sinnum til hamingju með árangurinn...... Eins og ég vissi... mundir rúlla þessu upp...
kv Anna S
Anna Sigurbjörg Sævarsdóttir, 23.4.2008 kl. 21:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.