30.4.2008 | 23:34
Heil önn á 10 dögum
Já það er eins gott að spýta í lófana gott fólk. Nú erum við byrjuð á sumarlotum og tökum heila önn á 10 kennsludögum- lesum tæpar 700 bls í þessu fagi sem ég er í núna, sem er skaðabótaréttur, og höfum til þess 16 daga- þetta er fyrir utan alla verkefnavinnu. Síðan er okkur skellt í lokapróf, sem sagt nóg að gera - enda er það bara gaman.
Ég ætla nú samt að leyfa mér að sofa út á morgun og eyða seinnihlutanum á bókarsafninu með bókina og lesa. Það er nefnilega próf á mánudag. Nóg að gerast framundan, er að fara í tvö afmælispartý um helgina og hlakka til þess.
Ætla ekki að hafa þetta lengra í bili.
Hafið það gott kæru bloggvinir og aðrir sem lesa án þess að kvitta.
Dísaskvísan
Athugasemdir
Gangi þér vel,og góða helgi framundan
Guðný Einarsdóttir, 1.5.2008 kl. 00:06
Við eigum það sameiginlegt vinkonurnar að þegar mikið er gera, þá vinnum við best og finnst gaman.
Gangi þér vel í þessari törn. Ég er að fara austur á eftir, ég nefni þeta við Óla sem að við vorum búnar að tala um
Sjáumst vonandi á morgun, þó ekki verði nema í mýflugnamynd.
Njóttu dagsins í dag og slakaðu á.
Linda litla, 1.5.2008 kl. 08:44
Gunnar Helgi Eysteinsson, 1.5.2008 kl. 12:31
Gunnar Helgi Eysteinsson, 1.5.2008 kl. 12:39
Gott hvað þú ert jákvæð. Gangi þér vel í þessari lotu, ég myndi ekki leggja í svona. Góða skemmtun um helgina og bara alltaf. hafðu það gott
þín bloggvinkona einfarinn (svala)
Sigríður Svala Hjaltadóttir, 1.5.2008 kl. 18:04
kvitt fyrir mig
Ólafur fannberg, 1.5.2008 kl. 18:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.