5.5.2008 | 10:46
Við erum að gera þetta í rangri röð folks!!!!!
Smá hugleiðing um lífið ..........
Í næsta lífi langar mig að lifa því "aftur-á-bak". Þá byrja ég dáin og klára það af.
Svo vakna ég upp á elliheimili og líðan mín fer batnandi með hverjum deginum sem líður. Mér verður sparkað þaðan út því ég er of hraust til að vera þar. Ég safna saman lífeyrinum og byrja líf mitt mjög rík.
Ég byrja að vinna og á fyrsta deginum verðlauna þau mig með því að gefa mér gullúr og partý mér til heiðurs. Ég vinn þar í 40 ár eða þangað til ég er nógu ung til að fara að djamma.
Stanslaus partý, drykkja og almennt lauslæti einkennir næsta tímabil hjá mér og þegar því er lokið þá er ég til í að fara í grunnskóla. Þá er ég tilbúin að fara á leikskóla, ég verð barn og leik mér, hef engar áhyggjur af neinu, ber enga ábyrgð og ég verð smátt og smátt að ungabarni þangað til ég fæðist.
...og svona í restina þá eyði ég síðustu 9 mánuðunum í að fljóta um í lúxus SPA aðstæðum með herbergisþjónustu o. fl. og svo endar líf mitt á UNAÐSLEGRI FULLNÆGINGU
Svona ætla ég að hafa þetta næst....pottþétt
Kv. Dísa
Athugasemdir
Þú ert svo sannarlega fyndin, en ég ætla pottþétt að hafa þetta líka svona einsog þú, bara yndislegt. þú ert æði
Sigríður Svala Hjaltadóttir, 5.5.2008 kl. 20:22
hehehehe Unaðsleg fullnæging, það hljómar ekki illa að enda lífið þannig. Það er bara svo margt sem að vantar inn í þetta hjá þér Vigga mín. EIns go td. mitt líf er öðruvísi en þitt..... hvar koma börnin mín inn í þetta ?? Ekki þarf að fara að troða þeim inn í mig aftur ....eða hvað ??
HA HA HA annars góður pistill hjá þér.
Heyrumst lov ya...
Linda litla, 5.5.2008 kl. 21:28
Vertu ekkert að flækja þetta vinkona- ef börnin komust út...þá komast þau inn aftur. Þetta gæti orðið nokkuð skemmtilegt að prufa að lifa lífinu svona
Dísaskvísa, 5.5.2008 kl. 21:46
haha góður punktur hjá þér skvísa
Guðný Einarsdóttir, 5.5.2008 kl. 23:15
Æiæ.... Það gæti bara verið vont..... krakkarnir eru svo stótir...
Linda litla, 6.5.2008 kl. 16:27
Nei Linda- þetta er afturbak- þau verða bara aftur lítil og þetta verður pís of keik!!!
Hugsaðu þér hvað þetta yrði gaman- tökum villtu árin aftur ...Þú veist Krossáin, Þórsmörk. Flórída, öll djömmin.....ALLT
Föðm, Snökk, Öpl og Störks.
Láttu þér batna
Dísaskvísa, 6.5.2008 kl. 16:36
hahhahaha... Krossáin ?? Það var ekki gaman Vigga, ég hefði drukknað ef að þú hefðir ekki bjargað mér í land. Ég vil sleppa Krossánni, reyndar myndi ég vilja breyta líka ýmsu LOL
Linda litla, 6.5.2008 kl. 17:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.