10.6.2008 | 00:36
Ég ætla að endurfæðast sem ......
Í þessu lífi er ég víst kona!
Í næsta lífi vil ég verða skógarbjörn.
Ef þú ert björn færðu að leggjast í dvala, þú gerir ekkert annað en að sofa í sex mánuði.
Ég gæti lifað með því.
Áður en þú leggst í dvala áttu að troða þig út af mat þangað til þú stendur á gati.
Ég gæti líka lifað með því.
Ef þú ert kvenkynsbjörn þá fæðirðu ungana þína (sem eru á stærð við hnetur) á meðan þú sefur og þegar þú vaknar ertu komin með stálpuð sjálfbjarga bangsakrútt.
Ég gæti sko alveg lifað með því.
Ef þú ert bjarnarmamma þá vita allir að þér er alvara.
Þú abbast upp á þá sem abbast upp á ungana þína og ef ungarnir þínir eru eitthvað óþægir, þá abbastu upp á þá líka.
Ég gæti lifað með þessu.
Ef þú ert birna þá BÝST maki þinn við því að þú vaknir urrandi og hann REIKNAR MEÐ því að þú sért loðin á leggjunum og með hátt hlutfall líkamsfitu.
Jebb, ég ætla svooo að verða skógarbjörn!!!
Dísa "Skógarbirna"
Athugasemdir
ó mæ god...... er ég skóogarbjörn ?? Ég sef skelfilega mikið og er VEL loðin HA HA HA HA HA HA
Heyrðu bangsi minn, vonandi var helgin góð hjá þér. Það var fínt að slreppa norður um helgina. Er nánast búin að sofa síðan ég kom heim.
Kveðja á Bifröst til þín mín gamla....síjú
Linda litla, 10.6.2008 kl. 01:37
Já þetta væri cool. Gangi þér vel Birna
kv svala
Sigríður Svala Hjaltadóttir, 10.6.2008 kl. 08:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.