14.8.2008 | 20:08
Íbúðin mín
sem hefur verið í leigu núna í rúmt ár er að losna á morgun, ég verð í henni næstu vikuna sjálf, ætla að fara í gegnum dótið mitt og skoða það vel, sortera hvað fer í áframhaldandi geymslu og hvað fer í notkun. Eftir viku fer hún aftur í útleigu í óákveðin tíma eða þar til ég ákveð að selja eða koma heim. Hlakka ótrúlega mikið til þess að fara í gegnum eigur mína- man ekki hvað ég á og hvað ég ekki á, sumt hefur verið eyðilagt annað ekki. Man ekki lengur hvað var heilt og hvað var ekki þar sem mörgu var rústað. Er enn ekki byrjuð á lyfjunum aftur þar sem ég er rétt að skríða saman. Ætli að ég sprauti mig samt ekki næstkomandi þriðjudag- þá ætti ég að vera orðin góð. Það er ekki nema hálfur mánuður þar til skólinn byrjar aftur, það eru hálfblendnar tilfinningar i sambandi við það- bæði tilhlökkun og kvíði, svona í bland.
Blogga meira um helgina þar sem það er netsamband í íbúðinni minni. Hafið að gott kæru bloggvinir mínir.
Dísan
Athugasemdir
Bíddu við..... ertu í fríi alla næstu viku ??
Linda litla, 14.8.2008 kl. 23:20
Hæ skvísa!!!Láttu þér líða vel...ætla að kíkja á þig á morgun,,,
Guðný Einarsdóttir, 15.8.2008 kl. 00:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.