25.8.2008 | 13:01
Yndislegasta kona sem uppi hefur verið.....
á afmæli í dag. Þrátt fyrir að hún sé ekki há í loftinu né vegi mikið þá er þessi kona sú sterkasta manneskja sem ég veit um. Þessi kona er hlýjasta manneskja sem ég veit um. Hún getur stjórnað með ákveðni sinni og um leið leiðbeint með ást sinni. Þessi kona er samansem merki yfir allt það sem mig langar að vera....Stórkostleg kona . Þessi kona er móðir mín!!
Elsku mamma mín - til hamingju með 65 ára afmælið, ég vildi að ég væri hjá þér en í huga mér erum við saman á þessum degi. Takk fyrir mig, ég elska þig og sakna þín.
Yndið þitt yngsta og besta
Athugasemdir
Til hamingju með hana mömmu þína
Ragnheiður , 25.8.2008 kl. 13:41
Til hamingju með súper-mömmu!
Guðrún Arna Möller (IP-tala skráð) 25.8.2008 kl. 14:12
Til hamingju með mömmu þína
Dísa Dóra, 25.8.2008 kl. 17:50
Þessu gleymdi ég í dag þegar þú sagðir mér að hún ætti afmæli,en allavega til hamingju með elsku mömmu þína
Guðný Einarsdóttir, 25.8.2008 kl. 22:54
Elsku mama 65 ára... til hamingju með daginn mama. þúsund knús til þín. Bestu kveðjur frá ættleiddu dótturinni.
Linda litla, 26.8.2008 kl. 17:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.