18.10.2008 | 21:26
Það er ekki bara kalt...það er skítkalt!!
Úfff..... það er svo kalt þessa dagana að ég meika varla út - Brrrrrr
Ég er búin að fá leiðbeinanda fyrir BS ritgerðina og ég er bara mjöög ánægð með úthlutunina. Er að fara á fund með honum á miðvikudaginn um hádegi - sjáum hvað kemur út úr því. Það er eins gott að fara skipuleggja skrifin þar sem að ég þarf að skila rannsóknaráætlun í janúar og skila fullgerðri ritgerð í maí. Verð nú samt að viðurkenna að ég er svona frekar stressuð yfir þessu - já svonar frekar mikið stressuð satt að segja. Það er líka svo mikið að gera í skólanum....þarf að skila 5 verkefnum eftir helgina - svo það er eins gott að halda sér við efnið.
Hafið það gott og verið góð hvert við annað
Dísa skvísa
Athugasemdir
Innlitskvitt,mín kæra Dísa skvísa skóla stelpa,
farðu vel með þig í þessum burrrr skítakulda
Guðný Einarsdóttir, 20.10.2008 kl. 08:33
Klæddu þig vel í þessum kulda Dúllan mín. Þú skilar örugglega þessum verkefnum þínum, þú ert svo dugleg
Kristín Gunnarsdóttir, 20.10.2008 kl. 10:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.