27.10.2008 | 22:31
En sá dagur!
Vá þvílíkur dagur sem þessi dagur hefur verið. Í allan dag hefur mér liðið eins og ......tja "steik" mundi ég segja að rétta orðið væri.
Fyrst fór ég til læknis og lét fjarlægja 3 fæðingabletti, hann skar mig og sneri svo steikinni við og gerði það sama á hinni hliðinni. Vantaði bara að ég væri krydduð rækilega. Þaðan fór ég beint í nudd og nálastungur. Var vel marineruð í olíu og svo þrædd upp á lítil spjót. Er frekar illt núna En það lagast hehe
Helgin var góð og góð vika framundan.
Verið líka góð hvert við annað.
Dísa stórsteik hehe
Athugasemdir
Ég er búin að vera að hugsa um það í mörg ár að fara í svona skanna, en hef ekki ennþá látið verða af því.
Linda litla, 27.10.2008 kl. 22:39
Hvernig er svona Dísu steik humm
Fyrirgefðu að ég kom ekki á sunnudaginn,en það var alltaf troðið af bílum er ég fór framhjá
Guðný Einarsdóttir, 27.10.2008 kl. 22:56
Ég sit inni í stofu og er að fara blogghring... með góða tónlist í gangi í tölvunni, þökk sé þér ;o) Amy Winehouse.
Linda litla, 27.10.2008 kl. 23:05
Innlitskvitt
Gunnar Helgi Eysteinsson, 28.10.2008 kl. 17:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.