8.11.2008 | 01:09
Músaveiðar- barflugur og fleiri kvikindi
Var að lesa undir próf á miðvikudagsnóttina þegar að síminn minn hringdi um hálftvö um nóttina. "Litla"frænka mín var á hinni línunni- í mikilli geðshræringu- ég heyrði tárin í augunum á henni. Henni var ansi mikið niður fyrir þegar að hún bað mig um að koma yfir til sín og hjálpa sér. Ég hentist í föt- hljóp yfir -eins og hrepparæfill til fara - með hjartað í brókunum yfir neyðartilfellinu. Þegar ég kom yfir var frænkan í hálfgerðu taugalosti- í strigaskóm- vafin inn í flísteppi.......
Þetta mikla neyðartilfelli var það að kisan hennar hafði komið inn með mús- sem var enn sprelllifandi og í fullu fjöri- mér létti, tók sópinn og sópaði litla greyinu út í kuldann og henti mér aftur í prófalestur....guðs lifandi fegin að neyðartilfellið var svo ekki neyðartilfelli eftir allt saman.
Er að vinna á barnum nú í nótt- vona að það verði fjör svo ég sofni ekki fram á borðið- var að læra til hálf 5 í nótt og komin á fætur rétt fyrir sjö til að klára síðasta verkefnið á þessari önn. Prófundirbúningur er formlega hafinn.
Hafið þið það gott um helgina og njótið hennar til fulls,
Dísa
Athugasemdir
Duglega skólastelpan mín,þú verður að muna eftir því að hvíla þig,svo þú verðir ekki gaga
Guðný Einarsdóttir, 11.11.2008 kl. 16:03
knús til þín. Já passaðu að læra ekki yfir þig. þú verður að hvílast nóg og borða nóg og hollt.
Sigríður Svala Hjaltadóttir, 11.11.2008 kl. 20:33
Dugnaðarforkurinn minn! Já og töffari, bara sópi sópi sópi og mýslan komin út!!! Vona að allt gangi að óskum hjá þér
Guðrún Arna Möller (IP-tala skráð) 14.11.2008 kl. 00:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.