20.11.2008 | 23:42
Mér gekk....
Bara mjög vel í morgun í munnlega prófinu í vinnurétti- svei mér ef ég er ekki að sjóast í þessu bara!! Ég fékk að vísu þessa einu spurningu sem ég vildi ekki fá - Áhrif alþjóðasáttmála á innlendan vinnurétt!! Ég svaraði eftir bestu getu og fékk tvær spurningar í kjölfarið og hviss - bang - bú- allt bú.
Ég er í skriflegu eigna- og veðréttarprófi á morgun kl 08:30- vona að það gangi vel. Ég ætla að læra til svona 2 og fara á fætur kl 5 eins og ég gerði í morgun. Er búin að vera að læra í tæpa 19 tíma. Doltið þreytt- en þetta er að klárast
Eigið góða nótt
Dísa í lærikasti
Athugasemdir
Ég skil ekkerttrúlega hef ég gefið þér allar gáfurnar mínar að sinni usss....
Gangi þér vel
Guðný Einarsdóttir, 21.11.2008 kl. 06:24
Frábært.... þú kemst í gegnum þetta.
Gangi þér vel í dag.
Linda litla, 21.11.2008 kl. 07:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.