23.11.2008 | 14:58
Ég sver það.....
Ég er að fá prófvikuna í bakið núna- ég er svo þreytt að ég get varla talað. Er að vinna, það er ekkert að gera - ekkert. Veit ekki hvort að ég sé ánægð með það eða ekki. Það er erfitt að halda sér vakandi þegar maður er bara að lufsast eitthvað en er samt ekki viss um að ég mundi nenna neinu ef það væri eitthvað að gera hehe. Samt búin að gera helling- þrífa öll klósett, skúra alla salina og svona sitthvað. Ég er alveg tóm. Vona að dagurinn verði skotfljótur að líða svo ég geti skriðið í bæli!!
Missó á morgun- er samt ekki að nenna því
sybbnar kveðjur
Dísan
Athugasemdir
Æji ekki gott að þú sért svona þreytt, Þú verður að á að hvíla þig betur vinan. Eigðu góðan dag í dag. kv einfarinn
Sigríður Svala Hjaltadóttir, 24.11.2008 kl. 03:48
Hæ hæ.
Hvernig gekk helgin ? Var hún svona róleg ??
Gastu ekki helt einhverjum bjór í strákana ?
Linda litla, 24.11.2008 kl. 13:08
Þú varst nú hálf tuskuleg þegar ég kom í gær,vonandi svafst þú vel í nótt kjelli mín..
Guðný Einarsdóttir, 24.11.2008 kl. 14:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.