Það er ekki bara kalt...það er skítkalt!!

Úfff..... það er svo kalt þessa dagana að ég meika varla út - BrrrrrrShocking

Ég er búin að fá leiðbeinanda fyrir BS ritgerðina og ég er bara mjöög ánægð með úthlutunina.  Er að fara á fund með honum á miðvikudaginn um hádegi - sjáum hvað kemur út úr því.  Það er eins gott að fara skipuleggja skrifin þar sem að ég þarf að skila rannsóknaráætlun í janúar og skila fullgerðri ritgerð í maí.  Verð nú samt að viðurkenna að ég er svona frekar stressuð yfir þessu - já svonar frekar mikið stressuð satt að segja.  Það er líka svo mikið að gera í skólanum....þarf að skila 5 verkefnum eftir helgina - svo það er eins gott að halda sér við efnið.  Woundering

Hafið það gott og verið góð hvert við annað

Dísa skvísa

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný Einarsdóttir

Innlitskvitt,mín kæra Dísa skvísa skóla stelpa,

farðu vel með þig í þessum burrrr skítakulda

Guðný Einarsdóttir, 20.10.2008 kl. 08:33

2 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Klæddu þig vel í þessum kulda Dúllan mín. Þú skilar örugglega þessum verkefnum þínum, þú ert svo dugleg

Kristín Gunnarsdóttir, 20.10.2008 kl. 10:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband