Prófið í dag

Fyrsta prófinu er lokið- Ég veit ekki hvernig mér gekk?? ég reyndi þó mitt besta og meira get ég ekki gert.  Þetta var próf í fjármálastjórnun- síðasti viðskiptaáfanginn minn í náminu og ég bið til guðs að ég hafi náð.  Viðskiptafögin eru ekki í uppáhaldi hjá mér- því miður.

Á morgun er það munnlega prófið í helv.... siðfræðinni- ég skal sko massa þetta próf og ná því - svo ég þurfi ALDREI að koma nálægt slíku aftur - meira ruglið það (ekki minn tebolli).

Fimmtudagur- munnlegt próf í Vinnurétti og á föstudag er það skriflegt 4 tíma próf í eigna- og veðrétti.

Ég óska hér með eftir styrk og gáfum svo ég nái öllum prófum!

Dísan með prófskrekkinn

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda litla

Get sent þér styrk en gáfur........... he he he

Linda litla, 18.11.2008 kl. 18:24

2 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Þér hefur örugglega gengið vel og það er enginn vafi að þú massar siðfræðina.

Helga Magnúsdóttir, 18.11.2008 kl. 20:46

3 Smámynd: Guðný Einarsdóttir

Sendi þér styrk mín kæra..gangi þér vel

Guðný Einarsdóttir, 18.11.2008 kl. 23:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband